Mistök

Alltaf leiðinlegt að sjá svona. Til verndunar fuglalífi - ekki fuglalífs. Maður segir ekki til verndunar manns. Ekki til heiðurs manns. Ekki til hjálpar manns. Maður segir til verndunar manni, til heiðurs manni, til hjálpar manni. Til verndunar viðkvæmri náttúru. Ekki viðkvæmrar.

Ólafur

Ég vissi það  alveg að Ólafi væri lítill greiði gerður með þessum áskorunum. Ég hélt nú kannski að hann ætti það inni hjá þjóðinni að hún tæki tillit til ákvarðana hans.

Svo myndi það setja þjóðina í vanda ef hann byði sig fram ennþá einu sinni, því margir kynnu ekki við annað en kjósa hann, enda væri óskemmtilegur endir á ferlinum að verða undir í kosningum.


En ef við sjáum sólskinsblett í heiði

Hörg "....að setjast allir þar og gleðja oss"

Vísa án skýringa um ónefndan mann

Í fyrsta lagi fannst að það
fallast mætti á
að það væri í annan stað
ekki rétt sér hjá.


Æ,æ!

Æ,æ. Mikið hörmulega eru þessi ljós, sem verið var að setja upp í gær,ósmekkleg á þessum stað.


Fyrrum ráðuneytisstjóri

Nú er orðinn brautryðjandi Baldur,
þótt batni ekki staða hans í dag.
Með gerðum sínum varð hann sjálfur valdur
að verulega breyttum eigin hag.

 



"Dislike"

Okkar veraldar auður mun
ennþá til fjandans renna.
Ofaná bætist Brjóstahrun
blóma íslenskra kvenna.


Vatn

Það er gott að sækja vatnið yfir lækinn. Þá gerir ekkert til þótt skvettist niður!

Jafnrétti

Fullkomið jafnrétti næst aldrei á meðan horft er kynjagleraugum á heiminn. Sífelldur samanburður eyðileggur jafnréttisgrundvöllinn og byggir jafnóðum ofaná þann þröskuld sem reynt er að eyða.

Næsta síða »

Um bloggið

Skruddublogg

Höfundur

Hallmundur Kristinsson
Hallmundur Kristinsson
Hagyrðingur og hundraðþjalasmiður

Athyglisvert

Sjáið þetta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 44205

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Hörg
  • Nokkrir bílar
  • ...haust
  • ...arnarholl
  • ...dscf0215

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband